Hún á afmæli .......

 

Elsku Pottormurinn okkar!

Bestu afmæliskveðjur frá okkur.  Sjáumst vonandi fljótlega.

Meee.... meee....

Gimbragroup.


Skipstjóri í afleysingum heima hjá sér.

Hann var í fríi og lá í landi,

að leysa af heima var enginn vandi.

Konan var að því komin að fæða,

og hvergi um húshjálp að ræða.

 

En hvað munar karlinn um kerlingarstörfin,

þó kannski sé stundum fyrir þau þörfin.

Konan var heima og hafði engu að sinna,

nema hugsa um krakka, það er ekki vinna.

 

Hún sagði: "Elskan, þú þarft ekkert að gera,

aðeins hjá börnunum að vera.

Ég er búin að öllu, þvo og þjóna,

þú þarft ekki að bæta, sauma eða prjóna."

 

"Matur er útbúinn allur í kistunni,

það ætti að duga svona í fyrstunni.

Aðeins að líta eftir öngunum átta,

ylja upp matinn og láta þau hátta."

 

Nú skyldi hann hafa það náðugt og lesa,

og ná sér í ærlegan skemmtipésa.

Hann var ekki sestur og nokkuð hissa,

er vældi í krakka: "Ég þarf að pissa."

 

Vart þeirri athöfn var að ljúka,

er veinaði annar: "Ég þarf að kúka."

Þarna var enginn einasti friður,

ef ætlaði hann að tylla sér niður.

 

Dagurinn leið svo í sífelldum önnum,

sem ei voru bjóðandi mönnum.

Þvílíkt og annað eins aldrei í lífinu,

útstaðið hafði hann í veraldarkífinu.

 

Ölduna stíga í ósjó og brælu,

var ekkert hjá þessu, það kallaði hann sælu.

En þeysast um kófsveittur skammtandi og skeinandi,

skiljandi áflogaseggina veinandi.

 

Ef eitt þurfti að éta annað þurfti að skíta,

og enginn friður í bók að líta.

En hún sagði: "Elskan, þú þarft ekkert að gera,

aðeins hjá börnunum heima að vera."

 

Nú voru krakkarnir komnir í rúmið,

kyrrlátt og sefandi vornæturhúmið.

Seiddi í draumheimana angana átta,

en ekki var pabbi farinn að hátta.

 

Hann stóð þarna úfinn, úrvinda og sveittur,

yfir sig stressaður, svangur og þreyttur.

Og horfði yfir stofuna: "Hamingjan sanna,

hér á að teljast bústaður manna."

 

Það skyldi hann aldrei á ævinni gera,

í afleysingu slíkri sem þessari vera.

Þó væri í boði og á því væri raunin,

að þau væru tvöfölduð skipstjóralaunin.

 

En þetta á konan kauplaust að vinna,

og kallað að hún hafi engu að sinna.

Af daglangri reynslu hann virtist það vera,

að það væri stundum eitthvað að gera.

 

Áfram með störfin, ótt líður tíminn,

æ aldrei er friður, nú hringir síminn.

"Halló" var sagt, "það er sætt ég túlka,

þér er sonur fæddur og yndisleg stúlka."

 

Hann settist á stól, fann til svima og klígju,

"hvað sagði hún að krakkarnir væru orðnir tíu!

Ég þarf að taka til öruggra varna,

ég ákveð á stundinni að hætta að barna!!"

 

Höf. ?


Hér er sönnun þess að karlmaður getur ekki án góðrar eiginkonu verið!

 

proof-man-needs-wife


Nýjar myndir

Hæhæ

 Takk fyrir síðast, frábær ferð setti nokkrar myndir inn, reyndar fleiri til, en þær bíða betri tíma.

Kveðja Ljósálfur   


Gimbra Group til Hveravalla 1. - 2. september 2007.

Gimbra Group skellti sér til Hveravalla um helgina.  Þetta ferðalag var fullt af frelsi, fjöri og fyllerí.  Gimbra Group samanstendur af jarmandi hressum gimbrum sem kallast G-Strengur, Lykla-Dís, Pottormur, Key-Master, Þoku-Dís, Darý, Hr. Kósakki Klifurmús, Mikki Tryggingasali, Gleym-Mér-Ei, Ljósálfur, Franski-Purkur, Bleiki-Refurinn og Þyrnirós.

Hveravallaljóð - Gimbra Group Söngurinn

Hoppa kátur út um dyrnar

komið er helgarfrí.

Allt þetta vinnuvesen

bú'nað fá nóg af því.

Samvinnuferðir farnar

og sólin fyrir bí.

Því bruna ég út úr bænum

ævintýrið í.

 

Bílstjórinn er kona

kost það telja verð.

Fyrst ég fór í svona

feminiska ferð.

Nú skal verða gleði

og glaumur fram á nótt.

Ég er ekki á heimleið aftur

fyrr en ég verð sótt.

 

Svo förum við til fjalla

fagurt landið er.

Stefnum til Hveravalla

því þar má vera ber.

Óbyggðirnar kalla

og ég verð að gegna þeim.

Ég veit ekki hvort eða hvernig

eða hvenær ég kemst heim.

 

Brátt svo vinnan bíður

bísna sama er mér.

Fljótt hér tíminn líður

kominn október.

Ég heyri Haffa kalla

með Arngrími í kór.

Ég skelli skollaeyrum

og skola niður bjór.

 

Höf. JM 2002


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband